Um okkur
Önnu Konditori var stofnað í september 2012 af Önnu Björnsdóttir og er í dag í eigu hennar og dóttur hennar Hildar Harnar Sigurðardóttur.


Áratuga reynsla í konditoríiðninni
Anna er menntaður konditor frá Ringsted í Danmörku og vann í Danmörku fyrstu 6 starfsárin í Kringlebageren í Hörsholm. Með áratuga reynslu hefur hún flutt sérfræðiþekkingu sína heim til Íslands.
Önnu Konditorí er veisluþjónusta með glæsilegt úrval af tertum, snittum og fleirra. Við sérhæfum okkur í að búa til fallegar og bragðgóðar tertur fyrir öll tilefni.
Einnig er hægt að koma með eigin óskir og hugmyndir sem við gerum okkar besta til að framkvæma. Við tökum glöð við öllum pöntunum sem okkur berast, fyrir afmæli, fermingar, brúðkaup eða hvaða tækifæri sem er.
Okkar þjónusta
Tertur
Glæsilegar tertur fyrir öll tækifæri - afmæli, fermingar, brúðkaup og margt fleira.
Snittur
Fínt úrval af brauðsnittum og smáréttum fyrir veislur og móttökur.
Kransakökur
Klassískar kransakökur sem gera hátíðina enn glæsilegri.